Sumarstarf á rannsóknarstofu
LamarCoca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður sem hefur djúpar rætur og 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Víking Brugghús á Akureyri er mikilvægur hluti af fyrirtækinu þar sem við bruggum og framleiðum okkar gæðabjór með stolti. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Við erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.
Helstu verkefni
- Gæðaeftirlit á framleiðslu drykkja, prófanir og kvarðanir
- Eftirlit og skráningar
- Mælingar sem tengjast vatnsgæðum
- Móttökueftirlit á hráefnum
- Framleiðslueftirlit á drykkjum
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- A.m.k 1 ára háskólamenntun
- Gæðaeftirlit og reynsla af störfum á rannsóknarstofu
- Sjálfstæð vinnubrögð og greinandi hugsun
- Almenn tölvukunnátta
- Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
- Góð íslensku og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af vörum Coca-Cola og aðrir starfsmannaafslættir
- Frábært mötuneyti
- Líkamsrækt
- Aðgangur að ráðgjafaþjónustu svo sem sálfræði- og félagsráðgjöf að kostnaðarlausu
Vinnutími er frá klukkan 8 til 16 alla virka daga.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
Ferilskrá og kynningarbréf skal fylgja með umsókn. Umsóknarfrestur er til 3. mars 2025.
Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eggert Sigmundsson esigmundsson@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.