Hlutastarf í áfyllingu á Akureyri hjá Coca-Cola á Íslandi
SøkCoca-Cola á Íslandi auglýsir hlutastörf við áfyllingu í verslunum á Akureyri og nágrenni. Þar sem um áfyllingu er að ræða, fylgir starfinu burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áfylling og framsetning í verslunum
- Móttaka á pöntunum og eftirfylgni
- Tryggja nægt vöruframboð í verslunum
- Pantanir og sala í verslunum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt bílpróf
- Þjónustulund og fagleg framkoma
- Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur
- Stundvísi og reglusemi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Drifkraftur og sveigjanleiki
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.
Umsóknarfrestur 27. september 2026
Frekari upplýsingar veitir Hallur Geir Heiðarsson hheidarsson@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.