Sumarstarf í viðskiptaþjónustu hjá Coca-Cola á Íslandi
SøkCoca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður sem hefur djúpar rætur og 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Við erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.
Helstu verkefni
- Almenn þjónusta við viðskiptavini í gegnum tölvupóst og síma
- Úrlausn og eftirfylgni fyrirspurna
- Stofnun viðskiptavina og viðhald viðskiptamannaupplýsinga
- Móttaka og skráning viðskiptavina og annara gesta
- Afgreiðsla sóttra pantana
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf er æskilegt
- Starfsreynsla af þjónustu
- Góð þekking á Microsoft Office
- Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjungar
- Fagleg framkoma
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Góð töluð og rituð íslenskukunnátta er skilyrði
- Góð töluð og rituð enska er kostur
- Þjónustulund, drifkraftur og sveigjanleiki
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af vörum Coca-Cola og aðrir starfsmannaafslættir
- Frábært mötuneyti
- Líkamsrækt
- Aðgangur að ráðgjafaþjónustu svo sem sálfræði- og félagsráðgjöf að kostnaðarlausu
Vinnutími er frá klukkan 8 til 16 alla virka daga.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
Ferilskrá og kynningarbréf skal fylgja með umsókn. Umsóknarfrestur er til 3. mars 2025.
Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrafnhildur Aradóttir haradottir@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.