Starf í áfyllingu á Akureyri hjá Coca-Cola á Íslandi
AplicarCoca-Cola á Íslandi auglýsir störf við áfyllingu í verslunum á Akureyri og nágrenni. Þar sem um áfyllingu er að ræða, fylgir starfinu burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins. Við leitum bæði að fólki í fullt starf og hlutastörf um helgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Áfylling og framsetning á vörum í verslunum
Móttaka á pöntunum og eftirfylgni
Tryggja nægt vöruframboð í verslunum
Pantanir og sala í verslunum
Menntunar- og hæfniskröfur
Gilt bílpróf
Þjónustulund og fagleg framkoma
Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur
Stundvísi, góð ástundun og reglusemi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Drifkraftur og sveigjanleiki
Góð færni í mannlegum samskiptum
Góð íslenskukunnátta
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.
Umsóknarfrestur 16. ágúst 2026
Frekari upplýsingar veitir Hallur Heiðarsson hheidarsson@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.