Skip to main content
Search jobs

Starf í áfyllingu á Akureyri hjá Coca-Cola á Íslandi

Sækja um Akureyri, Ísland Commercial: Field Sales 07/08/2026 112108

Coca-Cola á Íslandi auglýsir störf við áfyllingu í verslunum á Akureyri og nágrenni. Þar sem um áfyllingu er að ræða, fylgir starfinu burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins. Við leitum bæði að fólki í fullt starf og hlutastörf um helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Áfylling og framsetning á vörum í verslunum

  • Móttaka á pöntunum og eftirfylgni

  • Tryggja nægt vöruframboð í verslunum

  • Pantanir og sala í verslunum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Gilt bílpróf

  • Þjónustulund og fagleg framkoma

  • Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur

  • Stundvísi, góð ástundun og reglusemi

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Drifkraftur og sveigjanleiki

  • Góð færni í mannlegum samskiptum

  • Góð íslenskukunnátta

 

Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.

Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.

Umsóknarfrestur 16. ágúst 2026

Frekari upplýsingar veitir Hallur Heiðarsson hheidarsson@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Sækja um