Skip to main content
Search jobs

Vélvirki/vélstjóri hjá Víking brugghús á Akureyri

Postuler Akureyri, Islande Supply Chain 06/04/2026 109001

Víking Brugghús á Akureyri auglýsir eftir metnaðarfullum vélvirkja/vélstjóra til að starfa í tæknideild hjá fyrirtækinu. Viðkomandi mun fást við spennandi verkefni sem snúa að framleiðslubúnaði og endurbótum á vélbúnaði.

 

 

HELSTU VERKEFNI

  • Viðhald og umsjón á tækja og vélbúnaði
  • Ábyrgð og utanumhald með viðhaldskerfi brugghússins
  • Samskipti við birgja
  • Innkaup á varahlutum
  • Viðhald fasteigna og lóðar fyrirtækisins
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni

ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA

  • Réttindi til að starfa sem vélvirki eru nauðsynleg
  • Reynsla á sviði viðhalds véla og tækja
  • Reynsla af öryggis- og gæðamálum í framleiðslu er kostur
  • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er nauðsynleg
  • Lausnamiðuð hugsun og góðir skipulagseiginleikar
  • Jákvætt viðhorf og sveigjanleiki.

Víking Brugghús á Akureyri er mikilvægur hluti af Coca-Cola á Íslandi þar sem við bruggum og framleiðum okkar gæðabjór. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.

Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.

Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.

Umsóknarfrestur 19.apríl 2026

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurpáll Torfason storfason@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.

Postuler