Starf í áfyllingu á Akranesi og Borgarnesi hjá Coca-Cola á Íslandi
Sækja umCoca-Cola á Íslandi auglýsir fullt starf við áfyllingu í verslunum á Akranesi og Borgarnesi. Þar sem um áfyllingu er að ræða, fylgir starfinu burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áfylling og framsetning í verslunum
Móttaka á pöntunum og eftirfylgni
Tryggja nægt vöruframboð í verslunum
Pantanir og sala í verslunum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt bílpróf
- Þjónustulund og fagleg framkoma
- Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur
- Stundvísi og reglusemi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Drifkraftur og sveigjanleiki
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.
Umsóknarfrestur 27. september 2026
Frekari upplýsingar veitir Einar Auðunn Unnarsson eunnarsson@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.