Skip to main content
Search jobs

Vaktsjóri í vöruhúsi

Sækja um Reykjavík, Ísland Supply Chain 21/09/2026 112755

Coca-Cola á Íslandi leitar að drífandi einstaklingi í starf vaktstjóra í vöruhúsi til að slást í okkar frábæra hóp.

 

 

HELSTU VERKEFNI
•    Dagleg stýring og skipulag vaktar
•    Gæðaeftirlit og eftirfylgni verklags
•    Leiða og styðja starfsfólk á vakt, efla samvinnu og stuðla að jákvæðu vinnuumhverfi
•    Eftirlit með öryggi og verkferlum
•    Náið samstarf við dreifingarteymi til að tryggja skilvirkar afhendingar

ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
•    Sjálfstæð og ábyrg vinnubrögð
•    Grunnþekking á tölvum
•    Jákvæðni, þjónustulund og geta til að vinna undir álagi
•    Góð færni í mannlegum samskiptum
•    Stundvísi, áreiðanleiki og heiðarleiki
•    Lyftarapróf er kostur

Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.


Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.


Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.
 
Umsóknarfrestur 27. september 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Styrmir Fjeldsted sfjeldsted@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.

Sækja um