Skip to main content
Search jobs

Verkefnastjóri þjónustu - Tímabundið starf

Candidatar-me Reiquiavique, Islândia Commercial: Field Sales 20/11/2026 114693

Coca-Cola á Íslandi leitast eftir því að ráða metnaðarfullan verkefnastjóra þjónustu í tímabundið starf til 9 mánaða. Verkefnastjóri þjónustu leiðir þróun þjónustuvegferðar fyrirtækisins og innleiðingu umbótaverkefna sem bæta upplifun viðskiptavina. Starfið felur í sér náið samstarf þvert á fyrirtækið og tækifæri til að hafa áhrif á framþróun þjónustu.
Leitað er að skipulögðum og drífandi einstaklingi með sterka greiningar- og samskiptahæfni, áhuga á umbótum og getu til að leiða verkefni og samstarf markvisst.

 

 

HELSTU VERKEFNI
•    Leiða þróun og umbætur á þjónustuvegferð fyrirtækisins
•    Fylgja eftir innleiðingu þjónustu- og umbótaverkefna
•    Greina þjónustuferla og skilgreina tækifæri til aukinnar skilvirkni og betri upplifun viðskiptavina
•    Vinna náið með stjórnendum og starfsfólki þvert á fyrirtækið
•    Mæla árangur, fylgjast með lykilmælikvörðum og tryggja stöðugar umbætur
•    Leiða breytingar og styðja við innleiðingu nýrra vinnubragða


ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
•    Háskólamenntun sem nýtist í starfi
•    Þekking og/eða reynsla af verkefnastjórnun
•    Vottun í verkefnastjórnun er kostur
•    Góð tölvukunnátta og hæfni í Excel og Power Point
•    Skipulag, jákvæðni og frumkvæði
•    Góð færni í mannlegum samskiptum

Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.

Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.

Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.

Umsóknarfrestur 29. nóvember 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnþór Jóhannsson arnthor.johannsson@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.

Candidatar-me