Skip to main content
Search jobs

Sumarstarf sem aðstoðarmaður bílstjóra í dreifingu hjá Coca-Cola á Íslandi

Använd Nordöst, Island; Huvudstadsregion, Island; Island Lager och Produktion 20/02/2025 99815

Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.

Við erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.

 

Helstu verkefni

  • Aðstoða bílstjóra við að dreifa vörum fyrirtækisins til viðskiptavina
  • Kanna ástand vöru og tryggja að vörumagn sé rétt
  • Afhenda vörur eftir áætlun
  • Tryggja að bíllinn sé hlaðinn samkvæmt kröfum um gæði og öryggi
  • Burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins til viðskiptavina þegar þess er þörf
  • Mögulega aðstoða í vöruhúsi ef þess er þörf
  • Önnur tilfallandi verkefni


Hæfniskröfur

  • Reynsla af útkeyrslu er æskileg
  • Sterk öryggis- og gæðavitund
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum


Fríðindi í starfi

  • Afsláttur af vörum Coca-Cola og aðrir starfsmannaafslættir
  • Frábært mötuneyti
  • Öðlast vinnuvélaréttindi í samstarfi við CCEP
  • Líkamsrækt
  • Aðgangur að ráðgjafaþjónustu svo sem sálfræði- og félagsráðgjöf að kostnaðarlausu
  • Möguleiki á vinnu með skóla að vetri til og um hátíðar

Vinnutími er frá klukkan 8 til 16 alla virka daga.

Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.


Ferilskrá og kynningarbréf skal fylgja með umsókn. Umsóknarfrestur er til 3. mars 2025.


Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Bartosz Knasiak bknasiak@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Använd